Fréttir
Byggingu á fimm íbúða raðhúsalengju í Fögruhellu er nú í þann mund að ljúka. Á döfinni eru smíði á annari raðhúsalengju, parhúsalengju og einbýlishúsi og geta áhugasamir kaupendur haft samband í síma 898-9100.
30.01.2009 | Fagrahella 5-13
Nú eru hafnar framkvæmdir á fimm íbúða raðhúsalengju í Fögruhellu 5 - 13. Endaíbúðir eru 150 fermetrar og íbúðir þar á milli 130 fermetrar. Húsið verður klætt með gráu báruáli í bland við timbur. Þakið verður klætt með svörtu bárujárni. Söluaðili er Árborgir ehf.
Hafnar eru framkvæmdir við búgarð í Byggðarhorni sem samanstendur af einbýlishúsi, gesthúsi, vélaskemmu, hestuhúsi og reiðskemmu. Áætluð verklok eru haustið 2009.
Nú hafa Selhús lokið byggingu á raðhúsalengju í móhellu 10 - 20. Þá hafa framkvæmdir verið hafnar í Fögruhellu 9 - 13 .
Þann 27. júní sl. var fyrsta skóflustungan tekin fyrir viðbyggingu við leikskólann Heklukot á Hellu. Um er að ræða viðbyggingu með kjallara og mun byggingin rúma nýja deild auk starfsmannaaðstöðu.

Nú eru Selhús að leggja lokahönd á þriggja íbúða raðhúsalengju í Hraunhólum 9-13 á Selfossi.

Framkvæmdir eru hafnar á fullu á sex íbúða raðhúsalengju í Móhellu 10-20 á Gráhellusvæðinu. Um er að ræða 150 fermetra íbúðir og er söluaðili Árborgir.
 
JasaPlus | Erateknik |